Thursday, April 12, 2018

Falleg peysa

 Þessi peysa var að klárast hjá mér og er hún mjög falleg uppskriftina fékk ég á netinu og var hún á norsku og ekki mjög flókin  en á þessari síðu eru margar flottar uppskriftir sem eru fríar eða það er lítið mál að prenta þær út og nota http://www.vivtra.no/ set hér slóð á síðuna
 garnið sem ég notaði keypti ég í Handverkkúnst og heitir Drops merino extra fine og notaði ég prjóna nr.4
ég prjónaði stærð eins og á 2, ára en hún passaði á Elísu Bettý sem er 14.mán og er hún ekki stór eftir aldri en   mjög falleg peysa og ánægð með hana

No comments:

Post a Comment

Ungbarnakjóll

Prjónaði þenna kjól í sumar og gaf hann svo í skírnargjöf en uppskriftina er úr Tinnu blaði en man ekki númerið eða hvað kjóllinn heitir en ...