Wednesday, August 31, 2016

Monkey Wrench

 Þessi var saumuð á sunnudaginn við fórum saumaklúbburinn í sumarbústað hjá henni Gunndísi og var það alveg yndislegt og þetta er afraksturinn af því er hér en þessi blokk var gaman að gera
 en það er hægt að hafa þetta á þrennan hátt og ég er ekki búin að ákveð hvernig  ég ætla að hafa mína en ég á bara eftir að finna út úr því
 en svo koma hérna nokkrar myndir sem ég tók á sunnudaginn hér eru Jóna Sonja og Gunndís
 þetta er blokkin hennar Jónu kemur mjög vel út
 Ein ég sit og sauma er rétt nefni á þessari mynd Sonja sú eina að halda sér við saumaskapinn

 hér erum við Gunndís bara að brosa og hafa það skemmtilegt en það þarf líka
svo urðum við að taka eina selfi eins og sést þá er Jóna að laga á höfuðstellingun á mér fannst ég vera heldur háleit ....

Ungbarnakjóll

Prjónaði þenna kjól í sumar og gaf hann svo í skírnargjöf en uppskriftina er úr Tinnu blaði en man ekki númerið eða hvað kjóllinn heitir en ...