Monday, August 16, 2021

Prjónaveski

Ég hef ætlað að búa til eitthvað utan um hringprjónana mína því þeir voru alltaf í einni hrúgu og ég var alltaf að leita að réttri stærð ef ég fór að prjóna en þá kom þessi hugmynd að sauma veski svipað og ég gerði utan um venjulega prjóna því nóg á ég af efnum til að sauma úr.
Svo útkoman var þessi nóg pláss fyrir alla prjóna og ýmislegt annað sem fylgir þegar verið er að prjóna og er ég bara mjög ánægð með útkomuna.

Bylgjuteppi

þegar barnabarn biður mig að gera svona handa sér þá er það gert en eg gerði svona teppi fyrir nokkrum árum handa eldri barnabörnum en ég h...