Friday, November 26, 2021

Barnateppi

Ég keypti efnispakka frá Quiltbúðinni á Akureyri fyrir nokkrum árum og voru það myndir af allskonar fígúrum en eitthvað dróst það að ég byrjaði á því og barnið stækkaði og var ekki lengur áhugi að klára teppið í þeirri mynd sem upphaflega var ætlað því var sest niður hugsað hvað væri hægt að nota bútan sem voru í pökkunum.Ég fann góða hugmynd á youtube sem heitir Disappearing Nine patch quilt og koma svona frábærlega út en efnið dugði í allt nema kantin utan um en það keypti ég hjá Bóthildi
Bleika efnið í bakinu keypti ég hjá föndru en gula átti ég og svo stakk eg í saumförin og er ég mjög sátt við útkomuna
Hér sést hvernig hver blokk kom út einfalt og gott

Jóladúkur úr afgöngum

Þessi dúkur er saumaður úr afgöngum af jólaefnum sem ég er búin að eiga lengi og komin tími til að klára þau áður en fjárfest verður í nýjum en þetta munstur heitir Bargello og þarf að hafa svolitla þolinmæði til að sauma það een það heppnaðist bara ágætlega
það voru líka afganar á röngunni og búið til smá munstur en ég notaði bökunapappír sem ég var búin að teikna á og saumaskapurinn gekk svona stórslysa laust. Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi alla vega í þessu verkefni,

Jólahúfa

Sá þessa fallegu uppskrift í fréttablaðinu en hún var frí og hún er líka á ömmuloppu ég notaði Smart garn og prjónað á prjóna nr. 3 en í uppskriftinni var garnið Pernilla frá Filcolana og fæst það í Maro á Hverfisgötu og átti að prjóna á stærri prjóna en mín útgáfa er bara mjög fín og kemur bara vel út og er falleg.

Monday, August 16, 2021

Prjónaveski

Ég hef ætlað að búa til eitthvað utan um hringprjónana mína því þeir voru alltaf í einni hrúgu og ég var alltaf að leita að réttri stærð ef ég fór að prjóna en þá kom þessi hugmynd að sauma veski svipað og ég gerði utan um venjulega prjóna því nóg á ég af efnum til að sauma úr.
Svo útkoman var þessi nóg pláss fyrir alla prjóna og ýmislegt annað sem fylgir þegar verið er að prjóna og er ég bara mjög ánægð með útkomuna.

Tuesday, June 22, 2021

Berjavettingar

En ég prjónaði fjögur pör og alla eins því þær sem eiga að eignast þá vildu allar þessa liti en því miður var ekki hægt að mynda þá alla saman því fyrstu voru farnir í afmælispakka
Ég notaði lannett garnið og prjòna nr. 2 en það líka hægt að nota stærri prjóna þessi stærð hentar mér mjög því við sem ætlum að eiga vettlingan eru handnettar því passa þeir mjög vel
Nú ætla ég að taka smá pásu í vettlinga prjóni en á eftir að gera þessa uppskrift aftur og líka önnur munstur því svona vettlinga finnst mér mjög gaman að prjóna. Takk Jóna fyrir uppskriftina

Saturday, February 27, 2021

Ungbarnasett

Þá er enn eittungbarnsettið tilbúið en það er alltaf jafn gaman en prjóna þau en þetta er fyrir lítin prins sem er væntanlegur bráðlega. En ég nota uppskift að peysunni sem ég nota alltaf en hún er bara til hjá mér og stundum breyti ég munstrinu en þetta finnst mer mjög fallegt og hef notað það nokkru sinnum
Ég nota lannett garnið sem er mjög gott í svona sett og er prjónað á prjona nr. 2.5 tölurnar átti ég og eru skeljatölur
Þessi húfa er bara dásamleg, dúskurinn er keyptur á Aliexpress
hosurnar eru uppskrift frá prjónajóna og eru mjög góðar og fallegar og vettlingarnir er gömul uppskrift
buxurnar eru úr Ljúflingar bókinni

Emilía peysa

Þessi peysa fór í jólapakka til hennar Emilíu því hún bað mig að prjóna handa sér en það var bara eitt skilyrði að hún varð að vera mjúk og því fór það svo að ég keypti Baby merino garn í Föndru
og svo var farið að finna uppskrift en ég hafði enga ákveðna í huga en fann þessa í gömlu Prjónablaði Ýr nr. 50 og aðlagaði hana að hennar stærð ég notaði prjóna nr. 2.5 - 3.0 en ég hafði hana ekki til að máta því var bara notað málin sem ég hafði af henni en eins og sést þá passaði hún alveg og er ég mjög ánægð með hana

Ungbarnakjóll

Prjónaði þenna kjól í sumar og gaf hann svo í skírnargjöf en uppskriftina er úr Tinnu blaði en man ekki númerið eða hvað kjóllinn heitir en ...