Monday, August 20, 2018

Fairfield peysa

 Þessa peysu prjónaði ég í vor  sá auglýst samprjón hjá Storknum og fékk að vera með og var það mjög skemmtilegt að sitja og prjóna með konum sem ég þekkti ekki neitt og ég líka lærði helling að nýrri tækni og ég tala nú ekki um Guðrúnu sem á Storkin hún´er alveg ótrúlega hjálpleg og yndisleg kona
 en ég valdi að  prjóna þessa og heitir hún Fairfeld eftir Michele Wang og garnið keypti ég á staðnum
og heitir Brooklyn tweed shelter og er blásprengt og mjög falleg
 en ég mjög fegin að ég fór á samprjónið því prjónastærðin sem var uppgefin í uppskriftinn hentaði mér ekki þegar ég var búin að gera tvær prufur var ég ekki búin að finna rétta stærð en ég fékk hjálp við að finna rétta stærð en upphaflega er prjónastærðin 4.5 en ég endaði á að prjóna með prjónum númer 3 og þar af voru þeir ferkantaðir og mjög gott að prjóna með þeim
 svo lærði ég að gera nýja affellingu bæði í hálsmáli á töluoghnappagata lista og heitir hún Tublar method og er hægt að finna þetta allt á youtube en þessi affelling er mjög falleg
 eins og kannski sést á þessum myndum
og svo passaði peysa alveg og er ég búin að nota hana vel í sumar og þetta verður svona eilífar peysa
mjúk ,hlý og ótrúleg þægileg og stingur ekki

No comments:

Post a Comment

Ungbarnakjóll

Prjónaði þenna kjól í sumar og gaf hann svo í skírnargjöf en uppskriftina er úr Tinnu blaði en man ekki númerið eða hvað kjóllinn heitir en ...