Wednesday, March 5, 2025

Märthakoften

Þessa uppskrift af peysu raskt ég á þegar ég fór inná Bókasafnið í Hafnarfirði en þar var blað með uppskriftum á peysum sem norska konungsfjölskyldan hafði valið sér og er einstaklega fallegt en þessi heillaði mig og her er svo afraksturinn en það tók nokkurn tíma að klára hana en hún var prjónuð í áföngum en tókst loksins
en svo var að ákveða garnið það tókst að lokum og notaði ég Baby Wool og Mohair Silk og prjónað á prjóna nr.3,en þessi uppskrift er sú einfaldast sem ég hef prjónað ekkert verið að flækja neitt en ég gerði ein breytingu sem mér fannst fallegri fyrir mig og er mjög ánægð með hana hún er bæði mjúk og hlý

Thursday, January 2, 2025

Umslagataska

Það er ýmislegt sem dettur inn hjá okkur í Bútaklúbbnum en stundum gerum við eitthvað sameiginlega og þetta verkefni fann ein á netinu og kom með sem sumarvekefni
en þessa var mjög gaman að gera og notagildið kom á óvart hægt að geyma kort,peninga og ég tala nú ekki um að geyma skartgripi þegar farið er til útlanda
og svo er líka gaman að sauma og gefa vinkonum og setja eitthvað skemmtilegt í

Noodlehead taska

Ég bjó þessa tösku til rétt fyrir jóla og er mjög ánægð með hana notaði efni frá Tulip þó mér finnist þau stundum of skrautleg en þetta efni heillaði mig mildir og fallegir litir
en það var svolítil áskorun að gera þessa með vösum sem bæði voru lausir innní og með rennilás en það tókst bara nokkuð vel hjá mér
hún varð örlítið stærri en ég ætlaði mér en geri mið stærðina næst en er ekki alltaf þörf fyrir töskur það held ég
en uppskriftin er mjög góð og góðar leiðbeiningar á netinu

Märthakoften

Þessa uppskrift af peysu raskt ég á þegar ég fór inná Bókasafnið í Hafnarfirði en þar var blað með uppskriftum á peysum sem norska konungsfj...