Monday, March 7, 2022
Cathedral Grove
Sjal eftir Rosmary Hill (Romi) ótrúlega fallegt sjal sem ég fann á Ravelry og fannst ég verða að prjóna það svo hér er það klárað og strekkt og tilbúið til notkunarþað er ótrúlega mjúkt enda valdi ég garnið með það í huga er áður búin að prjóna úr samskonar garni en ég keypti það í Handprjón í Hafnarfirðien það heitir Martin's Lab og Mad Tosh og ég notaði prjóna nr 3.5 það var gaman að prjóna það og ekki flókin uppskrift en hún er á ensku og ekki mikið mál að fara eftir henni góðar útskýringar en þetta er samt í fyrsta skipti sem ég hélt að ég hefði keypt of lítið að garni en það var bara þetta eftir í bleika garninu en það var sem betur fer akkúrat því þetta hefði ekki nægt í eina umferð í við bót. Fallegt er það ❤
Saturday, March 5, 2022
Plast töskur
Þetta er frábær hugmynd af töskum sem hægt er að búa til í þeim stærðum sem maður óskar sér og er ég búin að gera nokkra bæði fyrir mig og dætur mínar og barnabörn en þær nota þær fyrir snyrtitöskur.en hún vinkona mín hún Gunndís fann þessa uppskrift á youtube og er hægt að finna hana þar en slóðin er Flosstube# 23.5 how to make vinyl project bag en plastið er keypt í RL búðinni er bara dúkaplast en þetta er góð aðferð til að nota t.d.afgangs efni og búta sem eru til hjá manni þegar önnur verkefni klárast en hugmyndin er góð og ég nýtti mér það svo var líka gaman að sauma þessar voru öðruvísi
Subscribe to:
Posts (Atom)
Märthakoften
Þessa uppskrift af peysu raskt ég á þegar ég fór inná Bókasafnið í Hafnarfirði en þar var blað með uppskriftum á peysum sem norska konungsfj...

-
Þessa sokka hef ég ætlað að prjóna lengi en fannst þeir svona fallega ljótir en lét svo til leiðast og er bara glöð með þá notaði afg...
-
þessar eru heklaðar ùr afgangsgarni sem èg var búin að geyma og sanka að mér og urðu þessar borðtuskur en þetta er bómullargarn og heklunál ...
-
Þegar von er barni í fjölskyldunni þá er farið að huga að því hvað sé hægt sé að búa til handa væntanlegu erfinga svo svona sett varð útk...