Ég fann þessa uppskrift og fannst hún mjög spennandi en þetta er púði sem er heklaður í hring og hægt að ráða hvað ég vill hafa hann stóran er svona hálfnuð með hann en uppskriftina er að finna á heimasíðu hjá Attic24.typepad.com er frábær síða litagleði og fjör hjá henni er líka inná Ravelty.com og þar er ferlið sýnt því mjög auðvelt að gera þennan púða en garnið keypti ég hjá Handprjón.is og heitir Raita og skiptir litum og er til í mörgum útgáfum en þetta eru mínir litir en ætla líka að gera annan sem er lita glaðari en ég er að hekla þennan í vinnunni ekki þannig að ég sé að svindla en ég hef klukkutíma í mat og nenni ekki að vera í tölvunni þannig að hekla er bara ágætt en ég er bíllaus og engar búðir nálægt þannig að þetta er ágætt........
sýni svo báða þegar ég verð búin mað þá..............
Wednesday, April 18, 2012
Tuesday, April 17, 2012
Karítas og Nera
Þær komu í heimsókn til okkar þær eru bara svo flottar að ég verð að setja þessa mynd af þeim hér
Nera er lítill Pug hundategund og ótrúlega mikið krútt var þarna að fylgjast með þegar tekið var í spil yfir páskana
og Karítas er alveg yndisleg ....... Nera er svo svört að hún varla sést set betri mynd seinna....
Nera er lítill Pug hundategund og ótrúlega mikið krútt var þarna að fylgjast með þegar tekið var í spil yfir páskana
og Karítas er alveg yndisleg ....... Nera er svo svört að hún varla sést set betri mynd seinna....
Fiðrildasjal
Ég hafði áður sýnt mynda af því hálfkláruðu og eins og sést þá kláraði ég það og er bara nokkuð ánægð með útkomuna en veit ekki hvort ég nota það sjálf eða gef það er ekki alveg eins og myndin sem ég fékk með en hver veit .Það var ekki mikið mál að prjóna þetta og bara nokkuð gaman og mjög gott að gera það um leið og ég horfi á sjónvarpið...
Bollakökupottaleppur
Subscribe to:
Posts (Atom)
Frón
Það er að koma vetur því er eins gott að eiga nóg að vettlingum því prjónaði ég þessa og varð að prufa nýtt garn en það heitir Lana Gatto og...
-
Þessa sokka hef ég ætlað að prjóna lengi en fannst þeir svona fallega ljótir en lét svo til leiðast og er bara glöð með þá notaði afg...
-
þessar eru heklaðar ùr afgangsgarni sem èg var búin að geyma og sanka að mér og urðu þessar borðtuskur en þetta er bómullargarn og heklunál ...
-
Þessi peysa er alveg geggjuð fallegir litir og pínu öðruvísi en hefðbundnar lopapeysur enhún er prjónuð úr léttlopa og litirnir voru alls ...